Litið yfir 2011…
Það er öllum hollt að líta yfir farinn veg og skoða hvað hann/hún hefur gert vel og hvað má bæta. Ég ákvað síðustu áramót að strengja ekki áramótaheit en setti mér þrjú markmið:
„En nýja árið leggst vel í mig, ég hlakka svolítið til að ögra sjálfri mér, en svona eru markmiðin mín og svona mun ég einnig mæla árangurinn:
• C25K klára allar vikurnar í fyrri hlutanum (árangurinn mælist fyrst og fremst í þoli)
• Líkaminn fyrir lífið 12 vikur (ummálsmælingar fyrir, á meðan og eftir)
• Mataræðið, nammidagur 1 dag í viku ( matardagbók)“
Nú er kominn tími á að fara yfir þessi markmið og hvernig gengið hefur að vinna að þeim. Ég ákvað því að lesa yfir gamla bloggið mitt og skoða færslurnar frá árinu….
Fyrsti janúar byrjar vel með förgrum fyrirheitum og markmið og gott ræktarár. 3. Janúar tiltekt og heima með börnum að óverdósa á hrökkbrauði. 8. Janúar var laugardagurinn og mín fór út í ísbúð að borða ís. Svo kemur mynd af öskrandi kalli 22. Apríl, mín búin að klúðra málunum greinilega og öskureið við sjálfa sig, 30. Júní alveg í öngum mínum yfir því að kílóin hafa hlaðist á mig aftur, set aftur fram fögur fyrirheit um að rækta líkamann að hausti. 2. September byrjuð að setja mér markmið fyrir árið og eitt af þeim er að hlaupa 10 km í Reykjarvíkumaraþoni 2012 (FOKK!!!). 12. September set ég fram markmið um að vera bjartsýn. 13. September ennþá engin ræktarstatus… 19. September skrifa ég um að halda í jákvæðni og gleði í bland við þyngdarpælingar. 11. Október ennþá enginn ræktarstatus, bíddu er þetta ekki heilsublogg????
Hvað geri ég svo við 2012?
Spurning um að gera bara copy/paste á markmiðin og standa sig betur á árinu?
Hreyfing
Innblástur
Matur
